Kirkjuleg hjónavígsla er helgiathöfn þar sem brúðhjón gefast hvort öðru og lofa að standa saman í gleði og sorg, styðja hvort annað, deila áhyggjum sínum og tvöfalda gleðina!
Þar mætast tveir einstaklingar á jafnréttisgrundvelli og heita því að vera hvor öðrum trúr, elska og virða hvor annan, og eiga, njóta og taka saman á móti yndi og erfiðleikum lífsins.
Athöfnin er tjáning gleði og vonar, samstöðu og ábyrgðar. Viðstaddir umlykja hjónin fyrirbæn og blessunaróskum og vissan um návist Guðs jafnt í daglegu lífi sem og á stórum stundum veitir hjónunum styrk til að lifa saman í kærleika, samstöðu og umhyggju.
Kirkjuleg hjónavígsla fer alla jafnan fram í kirkju en hægt er að fá leyfi til að hafa athöfnina heima eða úti undir berum himni.
Hvað þarf að gera?
- Hafa samband við prestinn og ræða stað og stund, uppbyggingu og yfirbragð athafnarinnar.
- Útvega hjúskaparstöðuvottorð
Hjónaefni þurfa að útvega sér hjónavígsluvottorð (no. prøvingsattest) hjá skattayfirvöldum í Noregi (no. skatteetaten) ef þau hafa verið búsett í landinu lengur en 6 mánuði en annars þarf að útvega hjónavígsluvottorð frá því landi sem búið var í og láta fylgja umsókn til skattayfirvalda hér.
Hjónavígsla getur ekki farið fram ef hjónavígsluvottorð berst ekki presti fyrir athöfn.
- Tala saman um umfjöllunarefnin hér að neðan
Venjulega hittir prestur hjónaefni fyrir vígslu 1 – 3 sinnum ef vegalengdir hamla því ekki. Farið er yfir samtalspunkta sem sjá má hér að neðan sem og athöfnina sjálfa.
Hægt er að bóka hjónavígslu á skrifstofu safnaðarins eða með því að hafa samband við sóknarprestinn.
