Starfsfólk safnaðarins.
Hjá Íslenska söfnuðinum starfa fimm fastir starfsmenn, sóknarprestur í hundrað prósent starfi og svo starfsmaður á skrifstofu, menningarfulltrúi, æskulýðsfulltrúi og ræstitæknir í hlutastarfi.
Einnig starfa allmargir starfsmenn í verkefnatengdri vinnu, svo sem við sunnudagaskóla, barna- og ungmennastarf og önnur tilfallandi verkefni.
Inga Harðardóttir
Inga kom til starfa sumarið 2019 en áður hafði hún umsjón með barna og æskulýðsstarfi Hallgrímskirkju. Inga býr í Osló með manni og tveimur sonum, en þau eiga einnig eina...
Berglind Gunnarsdóttir
Býr í Hokksund með manni og þremur börnum. Hún hóf störf í september 2019
Rebekka Ingibjartsdóttir
Býr í Ósló með manni sínum. Sat í stjórn safnaðarins frá 2017-2019 og tók við starfi sem æskulýðsfulltrúi í júní 2020.
Stjórn safnaðarins 2020-2021.
Stjórn safnaðarins er ásamt sóknarpresti í fyrirsvari fyrir söfnuðinn gagnvart stjórnvöldum, stofnunum og einstaklingum. Hún hefur umsjón með eignum safnaðarins og fjárhag.
Stjórn safnaðarins annast rekstur og framkvæmdir á vegum safnaðarins og styður kirkjulegt starf í söfnuðinum ásamt presti og starfsmönnum safnaðarins.
Stjórnarmenn eru kosnir til fjögurra ára í senn og skulu þeir koma úr röðum safnaðarmeðlima.
Stjórnarmenn eru fimm. Kjósa skal jafnmarga varamenn og taka þeir sæti í forföllum aðalmanna eftir þeirri röð sem þeir voru kosnir í.
Safnaðarstjórn tekur mið af starfsreglum Íslensku Þjóðkirkjunnar um sóknarnefndir nr. 732/1998.
Safnaðarstjórn starfar einnig eftir siðareglum sem hún setur sér
Núverandi stjórn safnaðarins.
Jónína Margrét Arnórsdóttir
Jónína var kosin í stjórn 2017 fyrst sem varaformaður en tók við sem formaður sumarið 2019. Býr í Ósló.
Katla Sveinbjörnsdóttir
Katla var í varastjórn frá 2017, kom inn sem varaformaður 2019. Var kosin inn sem varaformaður 2020. Býr í Kristiansand.
Ingvar Ingólfsson
Býr í Sandefjord með konu og dóttur. Ingvar var kosinn í stjórn árið 2018 og hefur verið gjaldkeri safnaðarins síðan þá.
Björn Hallback
Býr í Sandefjord Björn var kosinn í stjórn árið 2017. Gengdi stöðu formanns 2017-2018 Hefur verið ritari síðan 2018
Elín Soffía Pilkington
Býr í Trondheim ásamt manni og börnum. Kosin ný inn í stjórn á aðalfundi 2020.
Varastjórn 2020-2021
- Guðrún Elín Svansdóttir
- Sverrir Már Gunnarsson
- Eyjólfur Magnússon
- Guðjón Andri Rabbevåg
- Kolbrún Rut Ragnarsdóttir
Þá sitja í laganefnd safnaðarins:
- Þór Garðarsson
- Björn Hallbeck
- Rebekka Ingibjartsdóttir
Og í kjörnefnd sitja:
- Rannveig María Gísladóttir
- Gunnar Hólm
- Sverrir Már Gunnarsson








